Tenglar

25. ágúst 2010 |

Nánar varðandi dagskrá Reykhóladaganna

Dagskrá Reykhóladaganna, sem standa frá föstudegi og fram á sunnudag, hefur verið borin í hvert hús í sveitarfélaginu. Þau sem að hátíðinni standa hafa beðið um að frekari upplýsingum og ábendingum verði komið hér á framfæri, umfram það sem fram kemur í hinni fjölfölduðu dagskrá. Tilkynning skipuleggjenda er á þessa leið:

 

Ágætu sveitungar og aðrir gestir á Reykhóladegi. Því miður láðist að setja í auglýsinguna að Leifur og Systa sem bjóða öllum frítt í sund í Djúpadal sunnudaginn 29. ágúst óska eftir því að gestir sem vilja þekkjast boð þeirra komi heim að bæ og láti vita af sér áður en þeir fara í sund. Vilja skipuleggjendur Reykhóladagsins einnig nota tækifærið og þakka þeim fyrir höfðinglegt boð í tilefni hátíðar í heimabyggð.

 

Einnig auglýsist hér með að Handverkshúsið í Króksfjarðarnesi verður opið bæði á laugardag og sunnudag kl. 13-18. Þar verður boðið upp á kræklingasmakk en einnig kaffihlaðboð á sunnudeginum sem þegar hefur verið auglýst.

 

Einnig verður nú í fyrsta skipti boðið upp á Barnahorn í skólanum á spurningakeppninni á föstudagskvöldið og á skemmtuninni á laugardagskvöldið. Í boði verður að horfa á skemmtilega mynd, lita og leika sér við kubba o.fl. Foreldrar, munum að börn hafa oft litla þolinmæði til að sitja lengi kyrr á sama stað og hafa hljóð. Tökum því tillit til annarra og röltum með þau fram í Barnahornið þar sem ýmislegt skemmtilegt verður í boði.

 

Gestum er bent á að posi verður einungis til staðar á laugardeginum og bent á að koma kannski með lausafé með sér.

 

Athugasemdir

Björk Stefánsdóttir, mivikudagur 25 gst kl: 15:02

Pantanir á matinn í símum: Björk 8489215 og Ásta Sjöfn 8498531

María Játvarðardóttir, mivikudagur 25 gst kl: 18:50

Komið þið sæl gömlu sveitunar!

Dagskráin hefur verið borin í hvert hús í sveitinni en hvað með okkur gömlu sveitungana sem langar að koma? Getum við fengið að sjá dagskrána? Eruð þið ekki til í að birta dagskrána í heild sinni á síðunni?

Kær kveðja
Maja Ját.

Umsjónarmaður, mivikudagur 25 gst kl: 18:54

Fékk hana áðan í tölvupósti. Var að smella á pdf-formi inn í Tilkynningar neðst til hægri hér á vefnum. Sérstök frétt með vísan í dagskrána þar kemur inn í kvöld.

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31