Tenglar

1. október 2010 |

Náttúruverndarsamtök Vestfjarða í Bjarkalundi

Aðalfundur Náttúruverndarsamtaka Vestfjarða verður haldinn í Bjarkalundi í Reykhólasveit á sunnudag, 3. október, og hefst kl. 13. Að loknum venjulegum aðalfundarstörfum flytja erindi þær Hafdís Sturlaugsdóttir frá Náttúrustofu Vestfjarða og Theódóra Matthíasdóttir frá Náttúrustofu Vesturlands. Að loknum umræðum um erindi þeirra mun Atli Georg Árnason framkvæmdastjóri Þörungaverksmiðjunnar á Reykhólum kynna starfsemi fyrirtækisins. Að fundi loknum gefst fundarmönnum kostur á að skoða Þörungaverksmiðjuna undir leiðsögn Atla Georgs. Allir eru velkomnir á fundinn, hvort sem þeir eru í samtökunum eða ekki.

Aðalfundur Náttúruverndarsamtaka Vestfjarða (pdf)

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31