Tenglar

20. júní 2014 | vefstjori@reykholar.is

Nefndaskipan í Reykhólahreppi frágengin

Nýja sveitarstjórnin, talið f.v.: Vilberg Þráinsson, Sandra Rún Björnsdóttir, Karl Kristjánsson, Ágúst Már Gröndal og Áslaug B. Guttormsdóttir.
Nýja sveitarstjórnin, talið f.v.: Vilberg Þráinsson, Sandra Rún Björnsdóttir, Karl Kristjánsson, Ágúst Már Gröndal og Áslaug B. Guttormsdóttir.

Fyrsti fundur hinnar nýju sveitarstjórnar Reykhólahrepps var haldinn í gær og var þá m.a. skipað í nefndir og önnur trúnaðarstörf fyrir sveitarfélagið. Karl Kristjánsson var kjörinn oddviti og Vilberg Þráinsson varaoddviti, báðir til eins árs. Samþykktur var samningur við Ingibjörgu Birnu Erlingsdóttur um áframhaldandi starf sveitarstjóra næstu fjögur árin. Að öðru leyti skal vísað í fundargerðina í reitnum neðst til vinstri hér á síðunni, en jafnframt má sækja hana hér.

 

Myndin af hinni nýju sveitarstjórn sem hér fylgir var tekin á fundinum í gær.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31