Tenglar

10. júlí 2011 |

Net riðið á ættarmóti Skáleyinga á Reykhólum

Jói krafsar dún með klút fyrir vitum.
Jói krafsar dún með klút fyrir vitum.
1 af 5

Enn eitt ættarmótið var haldið á Reykhólum núna um helgina enda eru Reykhólar einhver vinsælasti ættamótastaður landsins. Að þessu sinni var það Skáleyjafólk, afkomendur Sigurborgar Ólafsdóttur (f. 1904, d. 1984), og Gísla Einars Jóhannessonar (f. 1901, d. 1984) búenda í Skáleyjum á Breiðafirði sem komu saman á Reykhólum. Kristín dóttir þeirra hjóna, sem búsett er á Ísafirði, sagði að mannskapurinn á mótinu hefði ekki verið talinn en líklega væru þetta eitthvað kringum hundrað manns enda eru afkomendurnir orðnir margir.

 

Meðal margra barna þeirra Sigurborgar og Gísla Einars er Eysteinn G. Gíslason (Eysteinn í Skáleyjum) fyrrum bóndi og kennari. Hann er síðari árin búsettur á Dvalarheimilinu Barmahlíð á Reykhólum en gat ekki tekið neinn þátt í ættarmótinu vegna veikinda sem aldri fylgja. Jóhannes Geir Gíslason bróðir hans var þeim mun öflugri við leiðsögn á Reykhólum. Þess má geta, sbr. frétt hér 4. júlí, að Jóhannes Geir var í fyrstu hreppsnefnd hins nýja Reykhólahrepps sem varð til árið 1987 en meðal þeirra fimm hreppa sem þá sameinuðust var Flateyjarhreppur (Eyjahreppur).

 

Jóhannes Geir (jafnan kallaður Jói) kom m.a. með stóran hluta af mannskapnum á ættarmótinu á nýju báta- og hlunnindasýninguna á Reykhólum. Jafnframt tók hann til hendinni að sýna hvernig æðardúnn var hreinsaður (krafsaður eins og það hét í Breiðafirði) á dúngrind og net voru riðin (í Breiðafirði talað um að riða net en ekki ríða net eins og vanalegast var um allt land). Óli bróðir Jóa sagði síðan frá þegar sýnd var gömul kvikmynd frá Barðstrendingafélaginu.

 

Athugasemdir

Halldór D. Gunnarsson, mnudagur 11 jl kl: 21:44

Mig minnir að sameining heppanna 5 hafi gerst 1987

Hlynur Þór Magnússon, umsjónarmaður vefjarins, rijudagur 12 jl kl: 11:38

Hárrétt athugasemd, Halldór. Þetta var innsláttarvilla gegn betri vitund. Búinn að breyta ártalinu úr 1984 í 1987 - eins og fram kom í tilvitnaðri frétt hér á vefnum fyrir rúmri viku.

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31