Tenglar

12. júní 2009 |

Netkaffi á Skriðulandi í Saurbæ

Skriðuland í Saurbæ.
Skriðuland í Saurbæ.
Skriðuland í Saurbæ er gamalgróinn verslunar- og veitingastaður við þjóðveginn fáeina kílómetra sunnan við Gilsfjarðarbrú. Staðurinn stendur hátt og þaðan er gott útsýni yfir sveitina. Dóróthea (Dóra) Sigvaldadóttir frá Hafrafelli í Reykhólasveit rekur Skriðuland ásamt sínu fólki. Í sumar er opið alla daga vikunnar frá kl. níu á morgnana til kl. tíu á kvöldin og grillið er opið á sama tíma.

 

Nú er komið netkaffi í Skriðuland þar sem hægt er gegn vægu gjaldi að komast í tölvu, á netið og prenta út. Keyptir eru inneignarmiðar sem gilda í 15, 30 eða 60 mínútur. Þegar fólk kaupir inneignarmiða á netið fylgir honum kaffibolli.

 

Eins og sumir hafa komist að raun um hefur bílaþvottaplanið á Skriðulandi verið ótengt um nokkurt skeið en það á að komast í gagnið á næstu dögum.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31