Neyðarnúmerið 112 á Íslandi í tuttugu ár
Í dag er 112-dagurinn, samstarfsverkefni stofnana og félagasamtaka sem annast margvíslega neyðarþjónustu, almannavarnir og barnavernd í landinu. Almannavarnir eru þema þessa dags og áherslan lögð á áfallaþolið samfélag með viðbúnað og viðbrögð við náttúruhamförum, sérstaklega jarðskjálftum og óveðri. Að þessu sinni er haldið upp á að 20 ár eru liðin frá því að Neyðarlínan tók evrópska neyðarnúmerið 112 í notkun hér á landi. Það leysti af hólmi 146 mismunandi símanúmer viðbragðsaðila.
Eitt samræmt neyðarnúmer sem allir þekkja skiptir máli þegar bregðast þarf hratt við neyðarástandi. Neyðarlínan gegnir lykilhlutverki í almannavörnum með móttöku og úrvinnslu neyðarbeiðna í neyðarnúmerið 112 og rekstri TETRA-fjarskiptakerfisins sem viðbragðsaðilar nota innbyrðis og sín á milli.
Þetta kemur fram á vef Almannavarna.