Tenglar

12. desember 2018 | Sveinn Ragnarsson

Niðurstaða úr valkostagreiningu, R leiðin vænlegust

mynd úr skýrslu Viaplan
mynd úr skýrslu Viaplan

Reykhólaleiðin R vænlegust fyrir Vestfjarðaveg

Samkvæmt ráðleggingum skipulagsstofnunar var gerð valkostagreining á leiðarvali Vestfjarðavegar 60 um Reykhólahrepp. Þetta var gert til að draga upp skýra, aðgengilega og hlutlæga mynd af þeim valkostum sem liggja fyrir varðandi Vestfjarðarveg 60. Til þess var fenginn óháður aðili sem ekki hefur áður komið að vinnu við V60 og engra hefði hagsmuna að gæta. Valin var til verksins verkfræðistofan Viaplan og vann Lilja Guðríður Karlsdóttir greininguna.

Valkostagreiningin fólst í mati á tæknilegum, skipulagslegum, umhverfislegum, félagslegum og hagrænum þáttum fjögurra leiða: Gangaleið D2, Teigskógarleið ÞH, Reykhólaleið Vegagerðarinnar A3 og Reykhólaleið Multiconsult R. Niðurstaða valkostagreiningarinnar liggur nú fyrir.

Helstu niðurstöður:

  •   Vænlegasti leiðarvalkosturinn er R-leið. R-leiðin sýnir betri niðurstöður fyrir tæknilega, skipulagslega, hagræna, umhverfislega og félagslega þætti en hinir kostirnir.
  •   R-leið uppfyllir best markmið samgönguáætlunar samkvæmt lögum um samgönguáætlun.
  •   Allar leiðir munu hafa jákvæð áhrif á samgöngur, byggðaþróun og ferðaþjónustu á sunnanverðum Vestfjörðum. R og A3 munu auk þess hafa mikil jákvæð áhrif á samgöngur, byggðarþróun og ferðaþjónustu á Reykhólum sem hinar gera ekki.
  •    Rekstrarkostnaður er minni á R-leið og A3 en á hinum.
  •    Skólaakstur skólabílsins sem er fyrir börn sem fara um Gufudalssveit minnkar úr 108 km á dag í 58 km á dag með R-leið. Þetta er 62% stytting frá því sem er í dag.
  •   Allar leiðirnar sem bornar eru saman í valkostagreiningunni stytta leiðina á sunnanverðum Vestfjörðum. Munurinn á leiðunum upp á þá styttingu er óverlegur eða um 2%. Þegar Dýrafjarðargöng verða tilbúin og farin R-leiðin yrði akstursleið íbúa frá Reykhólum til Ísafjarðar 175 km í stað 246 km.
  •   Formlegt leyfisveitingarferli á ÞH leiðinni er komið lengra á veg en á hinum.
  •   Kostnaður sambærilegur þegar kemur að ÞH og R-leið hvort sem farið verði í lagfæringar á Reykhólavegi strax eða ekki, enda fylgi sá kostnaður öllum leiðum.
  •  Mælt er með því að Vegagerðin bæti verkferla sína í mörgum þáttum, rannsaki allar leiðir til hlýtar og skýri mörg atriði betur til að auðvelda ákvörðunartöku í málinu.

 

Reykhólahreppur harmar að klausan um betri samgöngur innan hreppsins frá matsskýrslu Vegagerðarinnar 2005 hafi verið tekin út í matskýrslu 2017 þrátt fyrir að lög um samgönguáætlanir kveði skýrt á um að samgögur skuli stuðla að jákvæðri byggðarþróun.

 

Að öðru leiti er vísað í valkostagreiningu Viaplan sem fylgir hér með.

Ef óskað er frekari upplýsinga eða viðbragða þá má hafa samband við:

Tryggva Harðarson Sveitarstjóra Reykhólahrepps 898 7460, sveitarstjori@reykholahreppur.is

Ingimar Ingimarsson oddvita Reykhólahrepps 693 3929 ingimar@reykholar.is

 

  

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31