31. ágúst 2008 |
Nokkur fólksfjölgun á Reykhólum og í hreppnum í heild
Heldur fjölgar fólki bæði á Reykhólum og í Reykhólahreppi í heild þessi árin. Samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofu Íslands um miðársmannfjölda voru íbúar Reykhólahrepps 271 þann 1. júlí (254 á sama tíma í fyrra). Þar af voru íbúar á Reykhólum 132 (122 á sama tíma í fyrra). Sem fyrr er nokkur slagsíða á hlutföllum kynjanna, því að karlar í Reykhólahreppi töldust 143 og konur 128 en á Reykhólum voru 69 karlar á móti 63 konum. Í Reykhólahreppi voru 66 manns á aldrinum 0-16 ára, 166 manns á aldrinum 17-67 ára og 39 manns 68 ára og eldri. Á Reykhólum voru 43 á aldrinum 0-16 ára, 80 á aldrinum 17-67 ára og 9 manns 68 ára og eldri.
Miðársmannfjöldi í Reykhólahreppi (og á Reykhólum) 1997-2008 er þessi:
- 1997 - 329 (133)
- 1998 - 332 (136)
- 1999 - 310 (128)
- 2000 - 294 (113)
- 2001 - 295 (119)
- 2002 - 293 (121)
- 2003 - 285 (118)
- 2004 - 269 (113)
- 2005 - 251 (114)
- 2006 - 245 (111)
- 2007 - 254 (122)
- 2008 - 271 (132)