Tenglar

28. október 2014 | vefstjori@reykholar.is

Norðursalt: Ein stærstu hönnunarverðlaun heims

Frá vinstri: Garðar Stefánsson og Søren Rosenkilde hjá Norður & Co. og Þorleifur Gunnar Gíslason og Albert Munoz hjá Jónsson & Le'macks.
Frá vinstri: Garðar Stefánsson og Søren Rosenkilde hjá Norður & Co. og Þorleifur Gunnar Gíslason og Albert Munoz hjá Jónsson & Le'macks.
1 af 5

Umbúðir Norðursalts á Reykhólum hlutu á föstudag hin virtu Red Dot verðlaun í Berlín fyrir einstaka hönnun. Meðal þeirra sem hlotið hafa verðlaun Red Dot í gegnum tíðina eru fyrirtæki á borð við Nike, Apple og Pepsi. Auglýsingastofan Jónsson & Le’macks sá um hönnun á umbúðum og merkjum Norðursalts í náinni samvinnu við Norður & Co, framleiðendur Norðursalts. Nú þegar hafa umbúðirnar hlotið Lúðurinn frá ÍMARK og FÍT-verðlaunin ásamt því að hafa verið tilnefndar til Silfurljónsins í Cannes.

 

Norðursalt er komið í víða dreifingu á Íslandi, Danmörku og Þýskalandi ásamt því að vera á leiðinni í frekari sölu á Norðurlöndunum, í Belgíu og Austurríki á næstu mánuðum, segir í tilkynningu frá Norður & Co. Markmið framleiðandans er að hönnun og heildarupplifun neytenda eigi sér rætur á öllum stigum framleiðslunnar, frá gæðum vörunnar sjálfrar yfir í það að umbúðirnar veiti neytendum þær upplýsingar og þægindi sem hjálpa til að gera hversdagsmatinn betri.

 

Hönnunarferlið á umbúðum Norðursalts tók sjö mánuði, þar sem markmiðið var að endurspegla gæði saltsins og það sjálfbæra framleiðsluferli sem er þar að baki. Umbúðirnar hámarka því notendaupplifun með aðgengilegri skúffu, ásamt því að vera límlausar, sem veldur því að þær brotna hraðar niður í náttúrunni eftir notkun.

 

Red Dot / Norðursalt

Jónsson & Le’macks

Myndskeið um hönnunarferlið (YouTube, 3 mínútur)

Norðursalt

 

Athugasemdir

Eyvindur, mivikudagur 29 oktber kl: 08:26

Frábært, til hamingju Norðursalt

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31