31. júlí 2014 | vefstjori@reykholar.is
Norðursalt auglýsir eftir starfsmanni á Reykhólum
Norður & Co. óskar eftir að ráða starfsmann í framleiðslu í verksmiðju sinni á Reykhólum. Sveigjanlegur vinnutími er í boði.
Starfssvið:
- Framleiðsla
- Pökkun
- Þrif
- Annað tilfallandi
Hæfniskröfur:
- Sjálfstæð vinnubrögð og löngun til að læra nýja hluti
- Að eiga auðvelt með mannleg samskipti
Nánari upplýsingar veitir Kristinn Leví Aðalbjörnsson framleiðslustjóri í síma 647 1532.