1. ágúst 2013 | vefstjori@reykholar.is
Notaleg samverustund Vinafélags Barmahlíðar
Veðrið í fyrradag var ekki alveg eins gott og vonast var til þegar Vinafélag Barmahlíðar efndi til samverustundar sem ætlunin var að hafa utanhúss í þeirri blíðu sem spáð hafði verið og raunar hefur verið að undanförnu. Þess vegna var bara komið saman inni á heimilinu og stundin var ekkert síður skemmtileg þrátt fyrir það.
Myndirnar sem hér fylgja eru frá þessari notalegu samverustund í Barmahlíð.