11. desember 2013 | vefstjori@reykholar.is
Notið endurskinsmerki í skammdeginu
Lögreglan á Vestfjörðum vill enn og aftur beina til foreldra og forráðamanna barna, sem og annarra, ábendingu um mikilvægi þess að nota endurskinsmerki, sérstaklega núna þegar birtutíminn er sem stystur. Lögreglan á landsvísu biður jafnframt ökumenn að gæta vel að gangandi vegfarendum og þá sérstaklega í nágrenni við skóla. Sveitarstjórinn í Reykhólahreppi tekur eindregið undir þetta.
Dalli, mivikudagur 11 desember kl: 14:57
Krakkarnir standa sig vel í þessu en fullorðnir mættu vera betri fyrirmyndir.