Notuð dekk óskast - og harmonikan sem seldist
Fyrir tæpu ári var harmonika auglýst til sölu hér á Reykhólavefnum. Hún seldist ekki nærri, nærri strax - en þegar komið var fram á vetur hringdi auglýsandinn í umsjónarmann vefjarins og færði þau tíðindi, að þá hefði maður austur á fjörðum hringt út af auglýsingunni og hljóðfærið væri selt. Núna þessa dagana er maður í Reykhólasveit að leita að tveimur notuðum dekkjum fyrir lítið verð sem kæmust a.m.k. einu sinni gegnum skoðun.
Enn skal ítrekað, að velkomið er að koma „smáauglýsingum“ á framfæri hér á vefnum án endurgjalds. Einungis er tilskilið, að auglýsendur tengist héraðinu og ekki sé verið að auglýsa í atvinnuskyni. Þannig mætti t.d. auglýsa til sölu notaða saumnál eða flugvél eða eitthvað þar á milli. Og óska eftir notaðri saumnál eða þvottavél, svo dæmi séu tekin.
Sá sem leitar að dekkjunum vill helst ekki láta nafns síns getið. Í slíkum tilvikum má senda póst í netfangið vefstjori@reykholar.is eða hafa samband við umsjónarmanns vefjarins með öðrum hætti og þá verður komið á tengslum.
Dekkin sem um ræðir þurfa að vera af stærðinni og gerðinni 175 / 70 R 13.
Fyrirtæki utan héraðs sem vilja auglýsa hér á vefnum (auglýsingaborðar fyrir ofan eða neðan efstu frétt) geta auðvitað gert það líka gegn mjög hóflegu gjaldi til eiganda hans, Reykhólahrepps. Þess má í því sambandi geta, að heimsóknir á vefinn það sem af er þessu ári eru að meðaltali 532 á dag, en það er liðlega þrefaldur fjöldi íbúa í Reykhólahreppi á aldrinum 20-70 ára.
Grunnur myndarinnar sem hér fylgir er í myndasafni Árna Geirssonar - Ljósmyndir, myndasöfn í valmyndinni vinstra megin.
Umsjónarmaður vefjarins, fimmtudagur 11 aprl kl: 08:01
Dekkin sem hér var óskað eftir fengust. Notfærið ykkur vefinn fyrir „smáauglýsingar“ í héraði.