Tenglar

26. febrúar 2014 | vefstjori@reykholar.is

Ný lán til að auðvelda kynslóðaskipti

Mynd: Wikipedia.
Mynd: Wikipedia.

„Þetta er að braggast, en bújarðasala datt alveg niður 2008,“ segir Magnús Leópoldsson hjá Fasteignamiðstöðinni, sem sérhæfir sig í sölu bújarða. Hann segir að núna sé mikill áhugi á jarðakaupum og margir nefni ný lán Byggðastofnunar. Til að greiða fyrir kynslóðaskiptum í landbúnaði býður stofnunin nú sérstök lán til jarðakaupa, en skilyrði fyrir slíku láni er að á viðkomandi jörð sé stundaður búskapur í atvinnuskyni og að á jörðinni sé föst búseta. Lánin eru verðtryggð jafngreiðslulán til allt að 25 ára með 5% vöxtum. Möguleiki er á að semja um að fyrstu þrjú árin verði aðeins greiddir vextir.

 

Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.

 

Elín Gróa Karlsdóttir, forstöðumaður fyrirtækjasviðs Byggðastofnunar, segir að búskapur standi illa undir mjög háum fjármagnskostnaði því að greiðslur fyrir afurðir skili sér seint, einkum í sauðfjárbúskap. „Það er heilmikil þörf á að það haldist búskapur á þessum jörðum,“ segir hún um bújarðir þar sem líður að kynslóðaskiptum.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31