24. mars 2016 |
Ný orlofsíbúð fyrir bændur
Bændasamtök Íslands bjóða félagsmönnum sínum að nýta sér gegn vægu gjaldi orlofsíbúð í Þorrasölum í Kópavogi. Í henni eru tvö svefnherbergi, rúmgóð stofa sambyggð eldhúsi, bað- og þvottaherbergi og stórar svalir. Ný húsgögn og heimilistæki. Stutt er í alla þjónustu, m.a. sundlaug og fjölbreyttar verslanir.
Leigutími getur verið frá einum sólarhring og upp í viku (hugsanlega lengur við sérstakar aðstæður).
Myndir og nánari upplýsingar er að finna hér.