30. október 2020 | Sveinn Ragnarsson
Ný sóttvarnareglugerð tekur gildi á miðnætti
Helstu takmarkanir sem kynntar voru á fréttamannafundi ríkisstjórnarinnar í dag, sem ná til landsins alls:
- 10 manna fjöldatakmörk meginregla.
- - Heimild fyrir 30 manns í útförum en 10 að hámarki í erfidrykkjum.
- - 50 manna hámarksfjöldi í lyfja- og matvöruverslunum en reglur um aukinn fjölda með hliðsjón af stærð húsnæðisins.
- - Fjöldatakmarkanir gilda ekki um almenningssamgöngur, hópbifreiðar, innanlandsflug eða störf viðbragðsaðila.
- - Fjöldatakmarkanir gilda ekki um störf ríkisstjórnar, ríkisráðs, Alþingis og dómstóla.
- 10 manna fjöldatakmörk eiga ekki við þegar fleiri búa á sama heimili.
- Íþróttir óheimilar.
- Sundlaugum lokað.
- Sviðslistir óheimilar.
- Krám og skemmtistöðum lokað.
- Veitingastaðir með vínveitingaleyfi mega ekki hafa opið lengur en til 21.00.
- Grímuskylda þar sem ekki er unnt að tryggja 2 metra nálægðarmörk milli einstaklinga sem ekki eru í nánum tengslum.
- Börn fædd 2015 og síðar undanþegin 2 metra reglu, fjöldamörkum og grímuskyldu (gilti áður um börn fædd 2005 og síðar).