Tenglar

19. febrúar 2017 | Umsjón

Ný tækni lætur vita um sársauka kúa

Wikimedia Commons.
Wikimedia Commons.

Nú svo komið að hægt er að fá hugbúnað sem vakir yfir fjósinu og lætur vita ef skepnur eru veikar eða haga sér öðruvísi en venjulega. Líka er kominn búnaður sem fylgist með gripunum á beit, þannig að núna er í raun hægt að nota tölvukerfi til að vakta hjörðina allan sólarhringinn árið um kring.

 

Þetta kemur fram á vef Landssambands kúabænda.

 

Það nýjasta í þessari vöktunartækni er sænskur hugbúnaður sem byggir á þekkingu í myndgreiningu á samfélagsmiðlunum. Búnaðurinn er tengdur eftirlitsmyndavélum víða í fjósinu. Með honum eru svipbrigði kúa tengd við þekkt viðbrögð við sársauka og sér tölvukerfið því hvort kýr er að upplifa sársauka eða ekki.

 

Kerfið sendir svo skilaboð í síma bóndans og lætur vita ef grunur kemur upp um að kýr sé kvalin með einum eða öðrum hætti.

 

Það er vísindafólk við Landbúnaðarháskóla Svíþjóðar sem vinnur að þessu verkefni.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31