Tenglar

25. september 2015 |

Ný tillaga að matsáætlun send Skipulagsstofnun

Fyrirhugað framkvæmdasvæði (Vegagerðin).
Fyrirhugað framkvæmdasvæði (Vegagerðin).

Vegagerðin hefur sent Skipulagstofnun tillögu að matsáætlun fyrir framkvæmd á Vestfjarðavegi (60) á milli Bjarkalundar og Skálaness í Reykhólahreppi í Austur-Barðastrandarsýslu til formlegrar ákvörðunar. Þetta kom fram á vef Vegagerðarinnar í gær. Um er að ræða nýjan veg sem kemur í stað núverandi vegar milli Bjarkalundar og Skálaness við norðanverðan Breiðafjörð. Núverandi vegur liggur frá Bjarkalundi, um Þorskafjörð, Hjallaháls, Djúpafjörð, Ódrjúgsháls, Gufufjörð og Melanes að Skálaneshrauni í mynni Þorskafjarðar. Hann er 41,6 km langur en nýr vegur verður um 20-22 km langur, háð leiðarvali.

 

Drög að matsáætlun voru send umsagnar- og samráðsaðilum og voru auglýst á heimasíðu Vegagerðarinnar í júlí 2012 og hefur áætlunin verið endurskoðuð út frá ábendingum sem bárust.

 

Skoðaðar hafa verið margar leiðir, en áætlanir eru um að meta umhverfisáhrif fimm þeirra, þ.e. A1, D2, H, I og Þ-H.

 

Sjá nánar hér, þar sem jafnframt má finna tengla á fylgigögn.

 

15.09.2015  Hálsaleiðin margfræga er ein eftir

 

Athugasemdir

Ólafur Bjarni Halldórsson, fstudagur 25 september kl: 20:34

Leið ÞH um Teigskóg er sú sem á að fara. Það njóta fáir ef nokkrir þessa skógar í dag. Það mætti gera t.d. tvö vegstæði við skóginn leggja um hann stíga til þess að fólk staldraði við og nyti þessarar náttúruperlu. Í dag er Teigskógur vel geymt leyndarmál. Falleg náttúra er til þess að umgangast af virðingu og njóta hennar.

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31