Tenglar

24. apríl 2008 |

Nýi Reykhólavefurinn opnaður

1 af 2

Nýr vefur Reykhólahrepps er „kominn í loftið“ á sumardaginn fyrsta. Gamli vefurinn sem hafði þjónað vel og lengi var barn síns tíma og eltist fremur illa. Sennilega eru hvergi stórstígari breytingar þessi árin en í netheimum. Nýja vefnum er ætlað að duga um nokkra framtíð enda verður auðvelt að prjóna við hann eftir því sem nýjungar í vefjagerð líta dagsins ljós. Hér verður gerð nokkur grein fyrir hinum nýja Reykhólavef, verkefnum hans og væntingum.

 

Hlutverk Reykhólavefjarins er þríþætt. Honum er í fyrsta lagi ætlað að geyma upplýsingar og gögn varðandi sveitarfélagið, rekstur þess og þjónustu, í öðru lagi að flytja fréttir úr héraðinu og í þriðja lagi að vera gagnabrunnur varðandi náttúru og sögu héraðsins. Fyrsti þátturinn er kominn talsvert á veg. Annar þátturinn verður spunninn jafnóðum eftir bestu getu. Sá þriðji er eljuverk sem naumast er komið af stað og verður aldrei lokið.

 

Grunnur nýja vefjarins er ofinn hjá Snerpu á Ísafirði en umsjónarmenn prjóna eða hekla við hann smátt og smátt. Margar undirsíður eru faldar enn sem komið er og verða ekki birtar fyrr en nægilegt byrjunarefni telst vera komið þar inn. Einnig þarf að slípa og snyrta og laga margt sem þegar hefur verið birt.

 

Nauðsynlegt er að fólkið í Reykhólahreppi og aðrir veiti liðsinni og bendi á viðburði sem telja má fréttnæma eða frásagnarverða á þessum vettvangi. Rétt er að hafa í huga, að smáfréttir úr mannlífinu (nú eða dýralífinu) geta verið alveg eins merkilegar og stórfréttir - og oft skemmtilegri. Allar ábendingar eru vel þegnar og lítið mál er að senda stafrænar myndir netleiðis.

 

Jafnframt er nauðsynlegt að lesendur vefjarins séu vakandi yfir hvers konar villum og missögnum og láti vita af þeim, svo að laga megi og leiðrétta. Þar má líka nefna ábendingar um óvirka tengla.

 

Þegar nýjar undirsíður verða opnaðar og nýir efnisþættir líta dagsins ljós verður þess að öllum jafnaði getið í fréttahluta vefjarins. Notendur í Reykhólahreppi þurfa samt alltaf að hyggja vel að reitnum neðst til hægri, þar sem tilkynningar af margvíslegu tagi verða birtar. Rétt er líka að vekja athygli á atburðadagatalinu (almanakinu) hægra megin. Þegar smellt er á dökkgræna daga birtast upplýsingar um fundi eða mannfagnaði eða aðra viðburði sem umsjónarmenn vefjarins hafa fengið vitneskju um.

 

Gleðilegt sumar!


P.s.: Hver kvittar fyrst í gestabókina?
 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31