Tenglar

31. júlí 2008 |

Nýi sýslumaðurinn með viðtalstíma á Reykhólum

Hinn nýi sýslumaður Barðstrendinga, Úlfar Lúðvíksson, verður til viðtals á skrifstofu Reykhólahrepps á morgun, föstudag, milli kl. 14 og 15. Þetta er í fyrsta sinn sem Úlfar er með viðtalstíma á Reykhólum en hann tók við embættinu núna um miðjan mánuðinn. Forveri Úlfars, Þórólfur Halldórsson, hafði þann hátt að koma á Reykhóla einu sinni í mánuði.

 

Notendur vefjarins eru minntir á tilkynningadálkinn neðst til hægri á forsíðunni, en þar er jafnan greint frá viðveru sýslumanns og ýmsu öðru sem gott gæti verið að vita um. Jafnframt skal minnt á dagatalið efst í hægri dálki, þar sem ýmsir viðburðir eru skráðir (smellið á dökkgrænu reitina).

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31