11. apríl 2016 |
Nýir félagar velkomnir á aðalfund
Aðalfundur Barðstrendingafélagsins verður haldinn í félagsheimilinu Konnakoti að Hverfisgötu 105 í Reykjavík í kvöld, mánudag, og hefst kl. 20. Ólína Kristín Jónsdóttir formaður hvetur fólk til að koma á fundinn og fá sér jafnframt kaffisopa í góðum félagsskap. Nýir félagar eru velkomnir og hægt að skrá sig í félagið um leið og mætt er á fundinn.
Starf Barðstrendingafélagsins er öflugt og fjölbreytt.
Ágrip af sögu Barðstrendingafélagsins, flutt á 70 ára afmælinu þann 15. mars 2014