Nýjan samning um starfsskilyrði í mjólkurframleiðslu
Hafin verði vinna við nýjan samning um starfsskilyrði í mjólkurframleiðslu, með það að markmiði að efla samkeppnishæfni og treysta afkomu greinarinnar, segir í ályktun aðalfundar Landssambands kúabænda (LS), sem haldinn var í gær og í dag. Áður en til þess kemur er nauðsynlegt að meta þá reynslu sem komin er af framkvæmd núgildandi samnings, þar á meðal kostnaðarþróun í greininni, áhrif kvótakerfisins og stöðu verðlagningar og tolla. Fundurinn leggur áherslu á að við gerð nýs samnings verði horft til eftirtalinna meginatriða:
- Tryggt verði öruggt framboð nautgripaafurða fyrir íslenska neytendur á hagstæðu verði.
- Skapaðar verði sem bestar aðstæður til að nýta sóknarfæri á erlendum mörkuðum.
- Tryggð verði staða nautgriparæktarinnar sem eins af undirstöðuatvinnuvegum þjóðarinnar, er keppt geti við aðrar atvinnugreinar og aðra valkosti um fólk, fjármagn og land.
- Áhersla verði áfram lögð á heilnæmi afurða og kröfur til dýravelferðar í nautgriparækt.
- Viðhalda jákvæðri ímynd greinarinnar og afurða hennar.
Á grundvelli þessara markmiða verði gengið til samninga við ríkisvaldið um starfsskilyrði greinarinnar.
Sigurður Loftsson var endurkjörinn formaður LS og öll stjórnin einnig: Guðný Helga Björnsdóttir, Jóhann Nikulásson, Trausti Þórisson og Jóhann Gísli Jóhannsson.
Á fundinum voru samþykktar alls 22 ályktanir sem sækja má hér.