Nýjar Flateyjarmyndir frá Árna Geirssyni
„Ég fór með fjölskyldu og vinum í frábæra dagsferð með Eyjasiglingu á laugardag og hafði flugdrekann meðferðis. Afraksturinn er í tveimur myndasöfnum, annað er með loftmyndum en hitt er jarðbundnara. Ég vona að þessar myndir nýtist einhverjum sem vill vekja athygli á fegurðinni í Reykhólahreppi.“
Þetta segir Árni Geirsson flugdrekamaður og myndasmiður - og vinur bæði héraðsins og vefjarins.
Eins og lesendur Reykhólavefjarins vita hafa myndirnar frábæru sem Árni hefur tekið á lágflugi yfir Reykhólum og víða um héraðið á liðnum árum verið vefnum ómetanlegar.
Myndasöfn Árna má finna undir Ljósmyndir > Ýmis myndasöfn í valmyndinni hér vinstra megin og líka með því að smella hér.
► 24.09.2011 Reykhólahéraðsvefur í myndasafni Árna Geirssonar
► 08.05.2008 Frjáls eins og fuglinn yfir Reykhólasveit