2. febrúar 2011 |
„Nýjar fréttir“ af Eyvindi og Höllu á Ströndum
Fyrir skömmu komu í leitirnar á Þjóðskjalasafni áður ókunn skjöl um veru Fjalla-Eyvindar og Höllu í Drangavíkurfjalli á Ströndum, barnsfæðingu þar og handtöku vorið 1763. Einnig um réttarhöld yfir þeim í Árnesi í Trékyllisvík og á Hrófbergi við Steingrímsfjörð sama vor og dóm sem upp var kveðinn á Broddanesi í Kollafirði 30. maí sama ár. Núna á laugardaginn, 5. febrúar kl. 16, flytur Kjartan Ólafsson, fræðimaður og fyrrverandi alþingismaður og ritstjóri, fyrirlestur í Skelinni, lista- og fræðimannadvöl Þjóðfræðistofu á Hólmavík, um þessa merku uppgötvun undir titlinum Nýjar fréttir af Fjalla-Eyvindi á Ströndum. Heitt verður á könnunni og allir velkomnir.
Þetta kemur fram á fréttavefnum strandir.is.
Því mætti hnýta við, að á sínum tíma var Kjartan Ólafsson í stjórn Þörungavinnslunnar á Reykhólum, sem nú ber heitið Þörungaverksmiðjan.
Fjalla-Eyvindur í Wikipedia á íslensku