20. janúar 2016 |
Nýjar gjaldskrár fyrir ýmsa þjónustu
Komnar eru hér inn á vefinn allmargar gjaldskrár fyrir árið 2016, sem sveitarstjórn Reykhólahrepps samþykkti á síðasta fundi sínum. Um er að ræða gjaldskrár fyrir Grettislaug, tjaldsvæðið á Reykhólum, bókasafnið, leikskóladeild Reykhólaskóla, mötuneyti Reykhólahrepps, útleigu á húsakynnum Reykhólaskóla og útleigu á íþróttahúsinu á Reykhólum.
Hækkun á gjaldskránum er í öllum tilvikum í samræmi við hækkun vísitölu neysluverðs milli ára.
Gjaldskrárnar er að finna í reitnum Gjaldskrár hér neðst á vefnum.