Tenglar

19. maí 2013 | vefstjori@reykholar.is

Nýmæli hjá Orkubúi Vestfjarða

Vetrarmynd frá Mjólkárvirkjun í Arnarfirði. Vefur OV.
Vetrarmynd frá Mjólkárvirkjun í Arnarfirði. Vefur OV.

Orkubú Vestfjarða (OV) mun framvegis í kjölfar aðalfundar halda opinn upplýsingafund, Ársfund, sem opinn er öllum sem vilja kynna sér málefni fyrirtækisins. Fyrsti Ársfundur OV verður kl. 17 á miðvikudag, 22. maí, í Edinborgarhúsinu á Ísafirði og verður öllum opinn. Framsögumenn:

  • Viðar Helgason, stjórnarformaður OV.
  • Kristján Haraldsson orkubússtjóri.
  • Sigurjón Kr. Sigurjónsson, frkvstj. fjármálasviðs OV.
  • Þórður Guðmundsson, forstjóri Landsnets, sem fjallar um afhendingaröryggi raforku á Vestfjörðum.

Í lok fundar verður boðið upp á léttar veitingar.

 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kristjáni Haraldssyni orkubússtjóra.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31