Nýr forstöðumaður Markaðsstofu Vestfjarða
Gústaf er kerfisfræðingur en hefur sérhæft sig í markaðsmálum undanfarinn áratug og lauk meðal annars námi í samhæfðum markaðssamskiptum hjá Háskólanum í Reykjavík núna í vor. Gústaf er fimm barna faðir og kvæntur Sigrúnu Bragadóttur viðskiptafræðingi. Stjórn Markaðsstofu Vestfjarða býður Gústaf hjartanlega velkominn til starfa, segir í tilkynningu.
Gústaf tekur við af Jóni Páli Hreinssyni sem gegndi starfinu í nokkur ár en hætti um síðustu mánaðamót. „Brotthvarf mitt úr störfum er í fullri sátt við stjórn Markaðsstofunnar og skil ég sáttur við mín störf í þágu ferðaþjónustunnar á Vestfjörðum“, segir í tilkynningu frá Jóni Páli. Hann segist hafa verið heppinn í störfum sínum sem forstöðumaður Markaðsstofu Vestfjarða og unnið með fjölda hæfileikaríks fólks í vestfirskri ferðaþjónustu og öðlast ómetanlega reynslu og þekkingu á þessum fjórum árum sem hann hefur starfað við Markaðsstofu Vestfjarða.
„Þessi fjögur ár hafa verið viðburðarík og hef ég séð ferðaþjónustuna á Vestfjörðum vaxa og dafna. Komum ferðamanna hefur fjölgað mikið á undanförum árum og hlutur Vestfjarða í ferðaþjónustu á Íslandi hefur aukist hlutfallslega mest miðað við aðra landshluta. Ég skil sáttur við störf mín í Markaðsstofunni og óska ferðaþjónustu á Vestfjörðum alls hins besta, enda er ég þess fullviss þess að mikilvægi hennar í atvinnu- og efnahagslífi Vestfjarða muni aukast á komandi árum, öllum íbúum til hagsbóta.“