10. febrúar 2016 |
Nýr forstöðumaður hjá Náttúrustofu Vestfjarða
Nancy Bechtloff tók fyrir skömmu við starfi forstöðumanns Náttúrustofu Vestfjarða. Hún hefur víðtæka starfsreynslu og var síðast framkvæmdastjóri Vesturferða á Ísafirði, en áður hafði hún meðal annars verið markaðs- og sölufulltrúi hjá Iceland Express og starfað fyrir Ferðamálastofu Íslands í Þýskalandi.
Nancy er með meistarapróf í landafræði og norrænum fræðum frá Ernst-Moritz-Arndt-háskólanum í Greifswald í Þýskalandi.
Sjá einnig:
Þrautreynd í starf framkvæmdastjóra Vesturferða