Nýr framkvæmdastjóri kominn til starfa
Finnur Árnason rekstrarhagfræðingur er kominn til starfa sem nýr framkvæmdastjóri Þörungaverksmiðjunnar á Reykhólum. Einar Sveinn Ólafsson forveri hans lét af starfinu 1. nóvember og tók sama dag við stöðu framkvæmdastjóra Íslenska kalkþörungafélagsins á Bíldudal. Frá þeim tíma hefur Garðar Jónsson framleiðslustjóri verið starfandi framkvæmdastjóri Þörungaverksmiðjunnar.
Áður en Finnur lauk fil.kand.-prófi í rekstrarhagfræði frá Gautaborgarháskóla lauk hann búfræðiprófi frá Hvanneyri og B.Sc.-námi í efnafræði frá Háskóla Íslands. Ítarlegt viðtal við hann birtist hér á Reykhólavefnum eftir helgina.
Eiginkona Finns er María H. Maack líffræðingur, umhverfisstjóri hjá Íslenskri NýOrku. Börnin eru þrjú, tvær dætur og einn sonur, á aldrinum milli tvítugs og þrítugs.
► 15.09.2011 Nýi framkvæmdastjórinn kemur frá Olíudreifingu
► 01.11.2013 Vil skilja við eins og ég vil koma að