Nýr framleiðslustjóri hjá Þörungaverksmiðjunni
Garðar Jónsson hefur verið ráðinn framleiðslustjóri Þörungaverksmiðjunnar á Reykhólum og tekur við af Þorgeiri Samúelssyni sem flyst yfir á verkstæði fyrirtækisins. Þorgeir hóf störf í verksmiðjunni árið 1973 eða fyrir fjörutíu árum og hefur unnið þar mikinn hluta þess tíma. Síðustu fimm árin hefur hann gegnt starfi framleiðslustjóra en óskaði nú eftir flutningi milli deilda í fyrirtækinu.
Starfið leggst vel í Garðar Jónsson, hinn nýja framleiðslustjóra verksmiðjunnar, enda kveðst hann vera mikið náttúrubarn. „Þessi fallegi staður við Breiðafjörð á eflaust eftir að veita mér góðan innblástur. Ég lít á nýja starfið sem spennandi tækifæri sem gaman verður að takast á við,“ segir Garðar, sem fljótlega sest að við Hellisbrautina á Reykhólum.
Garðar er fæddur árið 1966 og kemur frá Akranesi þar sem hann ólst upp. Hann er Breiðfirðingur í föðurætt, nánar tiltekið frá Höskuldsey á sunnanverðum Breiðafirði. Garðar hefur áralanga reynslu af sjómennsku, bæði af vinnu í togurum og á vertíðarbátum frá Akranesi og Hrísey í Eyjafirði, þangað sem hann á líka ættir að rekja.
Árið 1991 lá leið Garðars til Elkem á Grundartanga þar sem hann starfaði í rúma tvo áratugi, fyrst sem almennur verkamaður og vaktmaður en síðan sem þjálfari í verkferlum og verkefnastýringu. Síðustu árin starfaði Garðar sem rekstrarstjóri yfir þremur lykilferlum í Járnblendiverksmiðjunni og hefur hlotið umtalsverða menntun og þjálfun í stýringu verkferla með áherslu á öryggi starfsmanna og gæði framleiðslunnar.