Tenglar

14. október 2016 | Umsjón

Nýr menningarfulltrúi Vestfjarða

Skúli Gautason.
Skúli Gautason.

Fjórðungssamband Vestfirðinga hefur ákveðið að ráða Skúla Gautason í starf menningarfulltrúa Vestfjarða, en Jón Jónsson á Kirkjubóli við Steingrímsfjörð lét af því starfi í síðasta mánuði. Áætlað er að Skúli komi til starfa í byrjun nóvember. Starfsstöð menningarfulltrúa verður eins og áður á Hólmavík.

 

Skúli Gautason er leikari að mennt en lauk síðast meistaranámi í menningarstjórnun frá Háskólanum á Bifröst og hefur starfað á þeim vettvangi, meðal annars sem viðburðastjóri Höfuðborgarstofu og framkvæmdastjóri Akureyrarstofu. Hann er þó þekktastur fyrir störf sín í leikhúsi og sjónvarpi, auk þess sem hann hefur verið helsta driffjöðrin í hljómsveitinni Sniglabandinu frá upphafi. Skúli er í sambúð með Þórhildi Örvarsdóttur söngkonu og eiga þau saman þrjú börn, en Skúli á eina dóttur úr fyrra sambandi.

 

Ráðningarstofan Talent sá um auglýsingu og ráðgjöf við ráðninguna. Starf menningarfulltrúa var auglýst um miðjan ágúst og voru umsækjendur 17. Tekin voru viðtöl við átta og í framhaldinu fjóra, þar sem framkvæmdastjóri og formaður FV tóku þátt í viðtölum. Niðurstaðan varð að ganga til samninga við Skúla og býður Fjórðungssamband Vestfirðinga hann velkominn til starfa á vettvangi menningarmála og atvinnuþróunar á þeim vettvangi.

 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Fjórðungssambandi Vestfirðinga.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31