17. febrúar 2014 | vefstjori@reykholar.is
Nýr starfsmaður á skrifstofu Reykhólahrepps
Ágúst Már Gröndal rafvirki og rekstrarverkfræðingur er kominn til starfa á skrifstofu Reykhólahrepps. Vegna fæðingarorlofs Bjarkar Stefánsdóttur er hann ráðinn í liðlega hálft starf skrifstofumanns (ritara, fulltrúa) í rúmt ár eða fram til 1. maí á næsta ári. Auk þess sinnir hann starfi skrifstofustjóra tímabundið í fjarveru ráðins skrifstofustjóra.
Ágúst Már settist að á Reykhólum ásamt fjölskyldu sinni í maí í fyrra, eða um leið og hann hafði lokið námi í rekstrarverkfræði í Þrándheimi í Noregi, en fyrir var hann rafvirki að mennt. Kona hans er Sigrún Kristjánsdóttir leikskólakennari, sem starfar við Reykhólaskóla. Synir þeirra eru Bjarni, sex ára, og Kristján, tveggja ára.