Tenglar

3. júlí 2008 |

Nýr sýslumaður skipaður

Dóms- og kirkjumálaráðherra hefur skipað Úlfar Lúðvíksson, skrifstofustjóra sýslumannsembættisins í Reykjavík og staðgengil sýslumanns, sem sýslumann á Patreksfirði frá og með 15. júlí 2008. Þórólfur Halldórsson, sem verið hefur sýslumaður á Patreksfirði um langt árabil, var fyrir nokkru skipaður sýslumaður í Keflavík frá sama tíma.

 

Þrjár umsóknir bárust um embættið á Patreksfirði. Umsækjendur auk Úlfars voru Sigríður Eysteinsdóttir, fulltrúi sýslumannsins í Reykjavík, og Þorsteinn Pétursson, fulltrúi á lögmannsstofu Skúla Bjarnasonar hrl.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31