Tenglar

11. júní 2015 |

Nýr umsjónarmaður fasteigna Reykhólahrepps

Hjalti er víðkunnur fyrir bátasmíðar.
Hjalti er víðkunnur fyrir bátasmíðar.

Hjalti Hafþórsson á Reykhólum hefur verið ráðinn umsjónarmaður fasteigna Reykhólahrepps. Þetta var ákveðið á fundi sveitarstjórnar í dag. Egill Sigurgeirsson á Mávavatni á Reykhólum hefur gegnt þessu starfi í mörg ár en sagði því lausu í vor. Umsækjendur um starfið voru fjórir en einn dró umsókn sína til baka. Hinir tveir voru, auk Hjalta, Guðlaugur Einarsson, Sauðárkróki, og Ísak Leifsson, Reykjanesbæ.

 

Fyrir Reykhólahrepp hafði Capacent umsjón með samantekt upplýsinga um starfið og úrvinnslu umsókna.

 

Hjalti mun starfa með Agli síðustu viku þessa mánaðar til að komast inn í hlutina og taka síðan við um mánaðamót.

 

Sjá einnig:

Ráðuneytisstyrkur þriðja árið í röð

 

Athugasemdir

Torfi, fstudagur 12 jn kl: 01:59

Frábært fyrir Reykhólahrepp að fá þennan þúsundþjala smið í þetta starf....

Til hamingju Hjalti!!!

R&Á, fstudagur 12 jn kl: 07:57

Frábært til hamingju Hjalti og öll við hinn :)

Kv
R&Á

Daníel Hansen, fstudagur 12 jn kl: 13:34

Til hamingju með þetta Hjalti. Gott fyrir sveitarfélagið að fá ,,þúsundþjalasmið" í sína þjónustu. Gangi ykkur allt í haginn.

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31