23. apríl 2009 |
Nýr vefur Barðstrendingafélagsins opnaður
Barðstrendingafélagið í Reykjavík hefur opnað fallegt vefsetur - um Barðstrendinga, fyrir Barðstrendinga, eins og þar segir. Vefstjóri er Jóhanna Fríða Dalkvist frá Mýrartungu í Reykhólasveit en formaður félagsins er Snorri Jóhannesson. Lítið inn á Barðstrendingavefinn. Sjón er sögu ríkari!
Tengil á vef Barðstrendingafélagsins má líka finna undir Tenglasafn í valmyndinni hér vinstra megin á síðunni. Þar kennir reyndar margra annarra grasa.