22. september 2020 | Sveinn Ragnarsson
Nýr vefur Hólabæjar kominn í loftið
Leikskólinn Hólabær er kominn með nýja vefsíðu og er tengill á hana hér vinstra megin á síðunni. Síðan er enn í vinnslu, svo ekki er allt komið inn á hana sem þar á að vera.
Í Hólabæ er verið að taka upp svonefnt Karellen leikskólakerfi, sem í stuttu máli er skráning á mætingu barna og starfsfólks, utanumhald upplýsinga og samskipti við foreldra.
Um þessar mundir eru 13 börn á leikskólanum, og vonir standa til að þeim fjölgi áður en langt um líður. Alls starfa 6 manns í Hólabæ, en ekki allir í 100% starfi.
Húsnæðið sem leikskólinn er í, var fyrsti barnaskólinn á Reykhólum, byggður 1958, og ævinlega kallaður gamli skólinn þar til leikskólinn fékk húsnæðið kringum 1990.