30. janúar 2011 |
Nýtt á vefnum: Innlegg í hugmyndabanka og kvæði
Nýtt efni er komið inn á undirvefi á þessum vef. Jón Atli Játvarðarson á Reykhólum orti kvæði um stjórnlagaþingsdóminn - sjá Gamanmál í valdálkinum hér vinstra megin. Mörgum finnst dómurinn að vísu ekki með nokkru móti heyra undir gamanmál! Og vegna nýlegrar umræðu um hugmyndabanka sendu þeir Guðbjartur Ásgeirsson og Magnús Þorgeirsson hugleiðingar - sjá Sjónarmið / Aðsent efni í valdálkinum.
P.s.: Lesendur vefjarins, sem líta hér ekki inn nema öðru hverju, eru minntir á að smella annað hvort á Eldri fréttir eða Skoða allar fréttir fyrir neðan neðstu frétt á forsíðunni. Nema hvort tveggja væri.