Tenglar

15. janúar 2014 | vefstjori@reykholar.is

Nýtt dreifikerfi Sjónvarpsins senn tekið í gagnið

Stafrænt dreifikerfi RÚV verður tekið í notkun í áföngum á þessu ári og nú er senn komið að Reykhólahreppi (380) og Búðardal (370 og 371). Eftir hálfan mánuð eða 3. febrúar verður skipt yfir í stafrænar útsendingar. „Ef þú býrð á þessum svæðum, ert ekki með myndlykil og notar loftnet, er ráðlegt að fara inn á þessar vefsíður til að fá nánari upplýsingar: www.ruv.is/stafraent, www.vodafone.is/sjonvarp/ruv eða www.sart.is, eða hringja í þjónustuver Vodafone í síma 1414,“ segir í tilkynningu frá markaðsdeild RÚV.

 

Þar segir einnig:

  • Stafræn tækni hefur rutt sér til rúms á fjölmörgum sviðum mannlífsins á síðastliðnum árum. Hljómplötur og plötuspilarar eru löngu horfin úr almenningseign og hljómsnældur og segulbönd heyra sögunni til. Nýrri fyrirbæri eins og DVD, VOD og minnislyklar hafa komið í staðinn.
  • Um allan heim er verið að leggja niður hliðrænt dreifikerfi sjónvarps. Það hefur þegar verið gert í nágrannalöndum okkar og verður gert í áföngum á þessu ári hjá RÚV. Góðu fréttirnar eru að með stafrænum útsendingum aukast myndgæðin til muna.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31