Tenglar

29. nóvember 2022 | Sveinn Ragnarsson

Nýtt raðhús á Reykhólum

Fv. Indriði Þröstur Gunnlaugsson, Guðmundur H. Jóhannsson, Jóhanna Ösp Einarsdóttir og Ingibjörg Birna Erlingsdóttir
Fv. Indriði Þröstur Gunnlaugsson, Guðmundur H. Jóhannsson, Jóhanna Ösp Einarsdóttir og Ingibjörg Birna Erlingsdóttir
1 af 4

Í dag var tekin 1. skóflustungan að fjögurra íbúða raðhúsi við Hellisbraut á Reykhólum. Það voru fulltrúar frá Leigufélaginu Bríeti ehf., sem verður eigandi hússins, Landsbyggðarhús ehf., sem byggir húsið og Reykhólahreppi, sem tóku skóflustunguna.

 

Frá Bríeti ehf. var Guðmundur H. Jóhannsson verkefnastjóri eignaumsýslu, frá Landsbyggðarhúsum ehf. voru Indriði Þröstur Gunnlaugsson og Birgitta Sigursteinsdóttir eigendur, og frá Reykhólahreppi Ingibjörg Birna Erlingsdóttir sveitarstjóri og Jóhanna Ösp Einarsdóttir formaður skipulags- húsnæðis- og bygginganefndar. Það voru í raun 4 skóflustungur, ein fyrir hverja íbúð.

 

Þetta hús kemur til með að bæta að nokkru úr brýnni þörf fyrir húsnæði á Reykhólum en samt má segja að nú þegar sé eftirspurn eftir 2 íbúðum í viðbót.

 

Veðrið var tiltölulega gott og ekki var frost í jörðu til trafala. Að lokinn athöfn á lóðinni við Hellisbraut 58 – 64, þáðu viðstaddir veitingar í boði Landsbyggðarhúsa ehf. á Reykhólar Café. Þar var slegið á létta strengi og Guðmundur sagði að það væri engin áhætta að byggja á stað með þessu útsýni, en Breiðafjarðarbotninn, Innsveitin og Skarðsströndin blasa við frá byggingarstaðnum.

 

Hér er myndband af samskonar húsi, nema það er 5 íbúða.

https://youtu.be/-MxJot5hMVU

 

 

 

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31