30. apríl 2013 | vefstjori@reykholar.is
Nýtt sjónvarpstæki og heimabíókerfi
Í tilefni af 25 ára afmæli Hjúkrunar- og dvalarheimilisins Barmahlíðar á Reykhólum, sem fagnað var á Barmahlíðardaginn fyrsta sumardag, færði Reykhólahreppur heimilinu nýtt sjónvarpstæki og heimabíókerfi. Sveinn Ragnarsson á Svarfhóli tók meðfylgjandi mynd af Ingibjörgu Birnu Erlingsdóttur sveitarstjóra við tækin í setustofunni í Barmahlíð.