Tenglar

16. október 2013 | vefstjori@reykholar.is

OV: Á fimmtu milljón króna til samfélagsverkefna

Stjórn Orkubús Vestfjarða hefur nú öðru sinni ákveðið að veita styrki til samfélagsverkefna á Vestfjörðum. Til ráðstöfunar eru að þessu sinni kr. 4.200.000. Umsóknir um styrkina þurfa að berast Orkubúi Vestfjarða fyrir 15. nóvember. Stefnt er að því að þeim verði úthlutað í desember.

 

Umsókn um styrk má senda í pósti til Orkubús Vestfjarða, Stakkanesi 1, 400 Ísafirði, með merkingunni Styrkur eða í tölvupósti til orkubússtjóra á netfangið kh@ov.is.

 

Við fyrstu úthlutun samfélagsstyrkja Orkubús Vestfjarða á síðasta ári voru veittir nítján styrkir til margvíslegra verkefna og málefna um allan Vestfjarðakjálkann, samtals að fjárhæð kr. 3.500.000.

 

Sjá hér skrá um samfélagsstyrki OV 2012

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31