12. apríl 2016 |
Óbreytt stjórn Landssamtaka sauðfjárbænda
Oddný Steina Valsdóttir í Butru og Böðvar Baldursson í Ysta-Hvammi voru endurkjörin í stjórn Landssamtaka sauðfjárbænda til tveggja ára á aðalfundi samtakanna núna fyrir helgi. Formaðurinn Þórarinn Ingi Pétursson á Grund í Eyjafirði, Þórhildur Þorsteinsdóttir á Brekku og Atli Már Traustason í Syðri-Hofdölum voru á síðasta ári kjörin í stjórn til tveggja ára. Þessi fimm skipa því stjórn samtakanna næsta starfsár.
Varamenn voru kjörnir þeir Sigurður Þór Guðmundsson, Holti í Þistilfirði, Davíð Sigurðsson, Miðgarði í Borgarfirði, og Birgir Arason, Gullbrekku í Eyjafirði.