Tenglar

4. mars 2009 |

Óbreytt viðbúnaðarstig í Bolungarvík og á Ísafriði

Vegna slæms veðurs á Norðanverðum Vestfjörðum hefur lögreglustjóri í samráði við Veðurstofu ákveðið að hættustig vegna húsa á reit 4 í Bolungarvík (Ljósaland 2, Traðarland 18, 21, 22, og Tröð) iðnaðarhúsnæðis á reit 9 í Ísafjarðarbæ (Grænigarður og Netagerðin) og vegna einstakra bæja í dreifbýli (Geirastaðir, Bolungarvíkurkaupstað, Fremstu hús, Dýrafirði, Höfði og Kirkjubær (hesthús), Skutulsfirði, Hraun 2, Hnífsdal og Fremri-Breiðadalur, Önundarfirði) verði óbreytt þ.a. rýming er enn í gildi.  Einstaka staðir eru undir eftirliti, s.s. hesthúsin í Bolungarvík og Funi á Ísafirði.
 
Fólki sem búsett er á þessum stöðum verður tilkynnt um áframhaldandi rýmingu sem mun standa að minnsta kosti til morgundags.
 
Flestar samgönguæðar milli þéttbýlisstaða eru lokaðar og er fólki ráðlagt að vera ekki á ferðinni nema brýna nauðsyn beri til og þá í samráði við upplýsingavef  Vegagerðarinnar eða í númerið 1717.
 
Skv. spá Veðurstofunnar fyrir Bolungarvík og Ísafjörð  verður áfram hvass vindur , 13-18 m/s allt til morgundags, en fram að miðnætti í kvöld má búast við kviðum í byggð upp í 20 m/s.
 
Lögreglustjórinn á Vestfjörðum
 
Kristín Völundardóttir

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31