24. janúar 2010 |
Öflug starfsemi hjá Breiðfirðingafélaginu
Starfsemi Breiðfirðingafélagsins syðra er kraftmikil sem endranær. Í gærkvöldi var haldin árshátíð á þorra en aðalfundur félagsins verður annað kvöld. Meðal þess sem á dagskránni verður fyrri hluta ársins, fyrir utan reglubundið prjónakaffi, spilakvöld og fleira, eru dansleikur og skemmtun Breiðfirðingakórsins í byrjun marsmánaðar, páskabingó, vorfagnaður, dagur aldraðra, gróðursetningarferð í Heiðmörk og svo sumarferð að Varmalandi í Borgarfirði.
Þetta kemur fram í nýjasta fréttabréfi félagsins. Formaður Breiðfirðingafélagsins er Snæbjörn Kristjánsson frá Breiðalæk á Barðaströnd.
Minningarkort Breiðfirðingafélagsins eru til sölu hjá Grétari Sæmundssyni í síma 551 0986 og hjá húsvörðum Breiðfirðingabúðar í síma 892 4511.
Tímaritið Breiðfirðingur er til sölu hjá Gísla Gunnlaugssyni í síma 434 1142 eða 513 4211. Hugmyndum að efni í næsta tölublað Breiðfirðings má koma á framfæri í netfang félagsins bf@bf.is.