Tenglar

25. ágúst 2011 |

Ófrosið lambakjöt úr sumarslátrun selst jafnóðum

Markaðurinn hérlendis hefur tekið vel við fersku lambakjöti frá þeim sláturhúsum sem boðið hafa upp á slátrun nú í ágúst. Í þessari viku og þeirri síðustu er slátrað nokkur þúsund lömbum. Sláturhúsin verða þó almennt ekki komin í full afköst fyrr en vika er liðin af september. Lítið hefur verið um sumarslátrun undanfarin ár. Steinþór Skúlason, forstjóri Sláturfélags Suðurlands, segir að hún sé dýr og kaupendur hafi ekki verið tilbúnir að greiða það yfirverð sem nauðsynlegt sé.

 

Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.

 

„Það sem komið er lítur vel út og það er allt upp í þokkalegustu lömb í þessu“, segir Gísli Garðarsson, sláturhússtjóri hjá SAH á Blönduósi. Hann tekur fram að lömbin falli ekki í verðflokkum vegna fitu, eins og eðlilegt sé á þessum árstíma. Hjá SAH var slátrað einn dag í síðustu viku og annan í þessari, samtals á níunda hundrað fjár.

 

Lítið er til af kindakjöti í landinu og birgðir á þrotum hjá sumum framleiðendum. Steinþór Skúlason segir að þess vegna hafi verið full ástæða til að slátra einhverju fyrr en venjulega. Mikil ásókn var í slátrun hjá SS fyrstu vikur sláturtíðar í fyrra og því hefst regluleg slátrun viku núna fyrr en venjulega og byrjað verður þar á miðvikudaginn í næstu viku.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31