Tenglar

18. maí 2011 |

Ókeypis tannlæknaþjónusta fyrir börn tekjulágra

Til 26. ágúst verða ókeypis í boði nauðsynlegar tannlækningar fyrir börn og unglinga undir 18 ára aldri ef foreldrar eða forráðamenn eru með litlar tekjur. Tannlæknar á tannlæknadeild Háskóla Íslands meta hvað teljast nauðsynlegar tannlækningar og þar er þjónustan veitt. Tekið verður við umsóknum til 1. júní.

 

Réttur til þjónustunnar

 

Réttur til þjónustunnar miðast almennt við að barnið eða unglingurinn búi og hafi lögheimili hjá því foreldri/forráðamanni sem sækir um og allar skattskyldar tekjur umsækjanda á árinu 2010 séu sem hér segir:

  • Einstæðir foreldrar/forráðamenn með tekjur undir kr. 2.900.000.
  • Hjón eða sambúðarfólk með tekjur undir kr. 4.600.000.
  • Tekjuviðmiðið hækkar um kr. 350.000 fyrir hvert barn umfram eitt.
  • Heimilt er að víkja frá tekjuviðmiði ársins 2010 ef um verulega lækkun tekna á árinu 2011 er að ræða, svo sem vegna atvinnuleysis.

Í undantekningartilvikum er heimilt að víkja frá tekjuviðmiðum ef um alvarlegan félagslegan vanda er að ræða.

 

Þjónustan er fyrir börn alls staðar af landinu en verður veitt á tannlæknadeild Háskóla Íslands í Læknagarði við Vatnsmýrarveg 16 í Reykjavík. Ekki er tryggt að hægt verði að anna allri eftirspurn þar sem um takmarkaðan tímafjölda tannlækna er að ræða.

 

Umsókn

 

Sækja þarf um þjónustuna á eyðublaði á vef Tryggingastofnunar. Skönnuð afrit af undirrituðum umsóknum má senda á netfangið tannverndbarna@tr.is. Einnig má skila umsóknum til Tryggingastofnunar, Laugavegi 114, 150 Reykjavík, og til umboða hjá sýslumönnum um land allt. Umsóknum verður svarað með bréfi eða netpósti.

 

Ferðakostnaður

 

Hægt er að sækja um endurgreiðslu vegna ferðakostnaðar fyrir börn sem búa utan höfuðborgarsvæðisins. Miðað er við a.m.k. 20 km fjarlægð frá miðborg. Eftir meðferð þarf að framvísa kvittunum fyrir áætlunarferðum og bensínkostnaði til umboða hjá sýslumönnum.

 

Nánari upplýsingar

 

Nánari upplýsingar eru veittar hjá þjónustumiðstöð Tryggingastofnunar í síma 560 4400, gjaldfrjálst númer 800 6044, einnig hjá þeim sýslumönnum sem hafa umboð fyrir TR um allt land og á vefnum. Foreldrar sem þurfa á því að halda eru hvattir til að leita aðstoðar hjá starfsmönnum leikskóla, grunnskóla og félagsþjónustu sveitarfélaganna - í tilviki Reykhólahreppsbúa hjá félagsmálastjóra Stranda og Reykhólahrepps - við að sækja um aðstoð í þessu efni.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31