Tenglar

15. maí 2012 |

Ökumenn í vandræðum á Klettshálsi og bíll valt

Jens Hansson í Mýrartungu, formaður Björgunarsveitarinnar Heimamanna í Reykhólahreppi, aðstoðaði sjö bíla sem lentu í vandræðum á Klettshálsi í veðuráhlaupinu tvo síðustu daga. Á sunnudag fór hann til aðstoðar við fjóra bíla og þrjá í gær. Fyrri daginn fór hann einn en þann seinni fóru fleiri með honum á sama bílnum.

 

Þetta gekk allt vel, segir Jens, þetta voru bílar sem voru vanbúnir til aksturs við þessar aðstæður.  Hann segir að mjög blint hafi verið og í gær valt jeppi á þessari leið. Ökumaðurinn var einn í bílnum og mun ekki hafa meiðst svo teljandi væri.

 

Meðfylgjandi mynd er úr vefmyndavél Vegagerðarinnar á Klettshálsi síðdegis á þriðjudegi. Þar er nú ólíkt umhorfs en var síðustu daga.

 

Sjá einnig:

9. apríl 2012  Stöðugt nýjar myndir frá vefvélum Vegagerðarinnar

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31