10. ágúst 2012 |
Ólafsdalshátíðin er á sunnudag
Minnt skal á Ólafsdalshátíðina á sunnudag, sem núna er haldin fimmta árið í röð eins og hér hefur komið fram. Margháttuð dagskrá fyrir unga sem aldna hefst strax eftir hádegi og stendur allan daginn. Frítt er inn á hátíðina og sýningarnar sem þar verða. Kostnaðinum er mætt með því að selja Ólafsdalsgrænmeti og efna til happdrættis með mörgum góðum vinningum.
Undanfari hátíðarinnar er gönguferð upp í skálina í Ólafsdal um morguninn.
Netsamband er stopult í Ólafsdal og því er gestum ráðlagt að hafa með sér lausafé til að versla og taka þátt í happdrættinu.
Sjá nánar hér (allar frekari upplýsingar og dagskráin í einstökum atriðum).