Tenglar

21. nóvember 2015 |

Öldungaráð Dalabyggðar og Reykhólahrepps stofnað

Táknmynd: Wikipedia.
Táknmynd: Wikipedia.

Sveitarstjórnir Reykhólahrepps og Dalabyggðar hafa samþykkt stofnun öldungaráðs Dalabyggðar og Reykhólahrepps og staðfest erindisbréf fyrir ráðið. Félagsmálastjórar eða þeir sem sinna málefnum eldri borgara eru tengiliðir sveitarstjórnanna við ráðið, starfa með því og eru því til aðstoðar. Fundir í ráðinu skulu haldnir ekki sjaldnar en tvisvar á ári í hvoru sveitarfélagi.

 

Samkvæmt erindisbréfinu er öldungaráðið sveitarfélögunum til ráðgjafar og skulu þær hafa samráð við það um málefni eldri borgara. Öldungaráðið getur komið ábendingum til sveitarstjórnanna um allt það sem betur kann að fara varðandi málefni eldri borgara.

 

Sveitarstjórnirnar skulu kynna öldungaráðinu með góðum fyrirvara hugmyndir og tillögur sem varða aldraða, svo sem um breytingar á gjaldskrám vegna þjónustu við aldraða og breytingar á reglum um niðurfellingar eða afslætti til eldri borgara. Þær skulu leita eftir umsögn ráðsins varðandi allt annað sem varðar hagsmuni og aðstæður eldri borgara. Hvor sveitarstjórn um sig skal halda fund með ráðinu að lágmarki einu sinni á ári.

 

Á síðasta fundi sveitarstjórnar Reykhólahrepps, þar sem stofnun ráðsins var staðfest og erindisbréfið samþykkt, voru Vilberg Þráinsson og Sandra Rún Björnsdóttir kjörin aðalmenn í ráðinu en Karl Kristjánsson og Áslaug B. Guttormsdóttir varamenn. Fyrir Dalabyggð eru Eyþór Jón Gíslason og Ingveldur Guðmundsdóttir aðalmenn en Þorkell Cýrusson og Halla S. Steinólfsdóttir varamenn.

 

Sjá einnig:

Jóna Valgerður Kristjánsdóttir í Mýrartungu: Öldungaráð í öll sveitarfélög landsins

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31