Öll vestfirsku liðin dottin út
Liðin tíu sem tengjast Vestfjarðakjálkanum eru öll fallin úr leik í Spurningakeppni átthagafélaganna. Í átta liða úrslitum í gærkvöldi fóru leikar þannig: Svarfdælingar og Dalvíkingar unnu Dýrfirðinga 8:7, Vestmannaeyingar unnu Djúpmenn 9:8, Húnvetningar unnu Breiðfirðinga 13:6 og Siglfirðingar unnu Norðfirðinga 10:5. Úrslitin ráðast svo á fimmtudagskvöldið í næstu viku. Fyrst keppa í undanúrslitum Svarfdælingar og Dalvíkingar við Siglfirðinga og Vestmannaeyingar við Húnvetninga og síðan keppa sigurliðin í þeim rimmum til úrslita.
Þetta er þriðja árið í röð sem Spurningakeppni átthagafélaganna er haldin. Nítján félög tóku þátt í henni að þessu sinni, þar af tíu vestfirsk (Breiðfirðingafélagið verður að teljast þeirra á meðal þó að það standi víðar fótum en á Vestfjarðakjálkanum eða kringum allan Breiðafjörð).
Myndirnar sem hér fylgja tók Jónas Ragnarsson í liði Siglfirðingafélagsins.
► 26.02.2015 Lið Breiðfirðingafélagsins í átta liða úrslit
► 11.02.2015 Búið að draga í Spurningakeppni átthagafélaganna